Search
Heim · Ráðgjöf

Ráðgjöf og meðferð

Ég vinn með einstaklingum, pörum og fjölskyldum sem vilja bæta samskipti, skilja betur eigin viðbrögð og tengslamynstur og skapa öruggari og heilbrigðari tengsl.

Ég vinn meðal annars út frá tilfinningamiðaðri meðferðarnálgun (EFT), tengslakenningum, meðvirkni- og áfallameðferð og lausnamiðaðri nálgun.

Í meðferðinni legg ég áherslu á að skapa skilning á þeim tilfinningum, þörfum og samskiptamynstrum sem hafa áhrif á líðan og tengsl, en jafnframt að vinna á hagnýtan hátt með það sem fólk getur gert til að bæta líðan, samskipti og tengsl.

Meðferðin er sniðin að einstaklingnum, parinu eða fjölskyldunni og þeim aðstæðum sem liggja fyrir hverju sinni.

Þjónusta

Hvað ég vinn með

Erfið reynsla og áföll, meðvirkni, tengslavandi, mörk og sambandsslit.

Samskiptaerfiðleikar, ágreiningur og endurtekin samskiptamynstur, ásamt áskorunum tengdum trausti, nánd og kynlífi.

Samskiptaerfiðleikar, álag og breytingar sem hafa áhrif á tengsl og líðan innan fjölskyldunnar.

Stuðningur vegna skilnaðar, foreldrasamstarfs, forsjár- og umgengnismála og mikils ágreinings.

Stuðningur við foreldrahlutverkið, barneignarferlið, tengslamyndun við barn og samskipti innan stjúpfjölskyldna.

Ráðgjöf fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur sem verða fyrir áhrifum af fíkn eða vímuefnanotkun.

Viðtöl

Ég býð upp á ráðgjöf og meðferð á íslensku og dönsku.

Viðtöl eru sniðin að þörfum hvers og eins, hvort sem um er að ræða einstakling, par eða fjölskyldu.

Fyrsta skrefið er samtal

Bókaðu tíma og við förum yfir hvað þú ert að takast á við og hvert þú vilt stefna.

Tengt efni

Hvað er EFT?

Tilfinningamiðuð parameðferð — gagnreynd nálgun sem beinist að tilfinningum og tengslum.

Um mig og mína nálgun

Menntun, sérhæfing og hvernig ég vinn með fólki.