Search
Heim · Ráðgjöf · Parameðferð – skilningur og verkfæri til breytinga

Parameðferð – skilningur og verkfæri til breytinga

Fyrir pör sem vilja rjúfa erfið samskiptamynstur og byggja upp meira öryggi, traust og nánd.

Í parasamböndum getum við fest okkur í samskiptamynstrum sem verða smám saman erfiðari að komast út úr. Annar aðilinn leitar kannski meira eftir svörum, nánd eða breytingum á meðan hinn dregur sig til baka, ver sig eða lokar á samtalið.

Með tímanum getur slíkt mynstur skapað aukna fjarlægð, misskilning og óöryggi, jafnvel þótt báðir aðilar vilji í raun ná aftur til hvors annars.

Í parameðferð vinn ég bæði með það sem liggur undir slíkum viðbrögðum og með hagnýtar leiðir til að bæta samskiptin.

Ég nýti meðal annars markviss verkfæri og æfingar sem geta hjálpað pörum að tjá sig skýrar, hlusta betur hvort á annað, takast á við ágreining á uppbyggilegri hátt og auka gagnkvæman skilning. Eftir því sem við á fá pör einnig hugmyndir og verkefni sem þau geta unnið með á milli viðtala til að styrkja og hlúa að sambandinu.

Markmiðið er bæði dýpri skilningur og raunhæf verkfæri til breytinga – að hjálpa parinu að rjúfa erfið mynstur, bæta samskiptin og byggja upp meira öryggi, traust, nánd og tengingu.

Nánd og kynlíf í parasamböndum

Nánd og kynlíf eru mikilvægur hluti margra parasambanda en geta jafnframt orðið viðkvæmur vettvangur þegar fjarlægð, misskilningur, álag eða fyrri reynsla hefur áhrif á sambandið.

Í ráðgjöf er hægt að vinna með ólíkar þarfir fyrir nánd og kynlíf, minnkaða löngun, fjarlægð í sambandinu, óöryggi og erfiðleika við að ræða þarfir og langanir, sem og hvernig tilfinningaleg tengsl og kynlíf hafa áhrif hvort á annað.

Áherslan er á öryggi og virðingu og að báðir aðilar fái rými til að skilja eigin upplifun og þarfir og finna leiðir til að ræða þessi mál á opnari og uppbyggilegri hátt.

Fyrsta skrefið er samtal

Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.

Tengt efni

Tilfinningamiðuð parameðferð — gagnreynd nálgun sem beinist að tilfinningum og tengslum.

Stuðningur vegna foreldrasamstarfs, forsjár- og umgengnismála og mikils ágreinings.

Menntun, sérhæfing og hvernig ég vinn með fólki.