Search
Heim · Ráðgjöf · Skilnaður og foreldrasamstarf

Skilnaður og foreldrasamstarf

Stuðningur vegna foreldrasamstarfs, forsjár- og umgengnismála og mikils ágreinings í kjölfar skilnaðar.

Skilnaður getur verið eitt stærsta álag sem fjölskylda gengur í gegnum. Þegar börn eiga í hlut verður sérstaklega mikilvægt að foreldrar geti fundið leiðir til að halda áfram samstarfi sínu sem foreldrar, jafnvel þótt parasambandinu sé lokið.

Ég hef sérhæft mig í meðferðarvinnu með foreldrum og börnum í skilnaðarferli og samtölum við foreldra sem eiga í miklum ágreiningi.

Ráðgjöfin getur meðal annars snúið að foreldrasamstarfi, samskiptum, forsjár- og umgengnismálum og því hvernig hægt er að styðja við börnin þegar miklar breytingar eiga sér stað í fjölskyldunni.

Fyrsta skrefið er samtal

Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.

Tengt efni

Þegar samskipti, álag eða breytingar hafa áhrif á tengsl innan fjölskyldunnar.

Stuðningur við foreldrahlutverkið, barneignarferlið og stjúpfjölskyldur.

Erfið reynsla og áföll, meðvirkni, tengslavandi, mörk og sambandsslit.