Search
Heim · Ráðgjöf · Einstaklingsmeðferð og ráðgjöf

Einstaklingsmeðferð og ráðgjöf

Fyrir þá sem eru að takast á við erfiða reynslu og áföll, meðvirkni, tengslavanda, mörk eða sambandsslit.

Á lífsleiðinni geta komið tímabil þar sem við þurfum stuðning við að takast á við erfiða reynslu, breytingar eða áföll og finna leiðir til að líða betur og halda áfram.

Ég vinn meðal annars með einstaklingum sem eru að takast á við sambandsslit, erfiðleika í nánum samböndum, afleiðingar fyrri áfalla eða reynslu sem heldur áfram að hafa áhrif á líðan, sjálfsmynd og tengsl.

Einnig getur vinnan snúið að því að þekkja eigin þarfir betur, læra að setja heilbrigð mörk og skilja og breyta mynstrum sem hafa orðið til í samskiptum við aðra.

Í einstaklingsvinnunni nýti ég meðal annars áfallamiðaða nálgun og meðvirknimeðferð. Áherslan er á að skapa aukinn skilning á eigin viðbrögðum og reynslu, styrkja tengslin við sjálfan sig og finna nýjar leiðir til að takast á við það sem reynist erfitt.

Fyrsta skrefið er samtal

Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.

Tengt efni

Ráðgjöf fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur sem verða fyrir áhrifum.

Menntun, sérhæfing og hvernig ég vinn með fólki.