Ráðgjöf vegna fíkni- og vímuefnavanda
Fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur sem verða fyrir áhrifum af fíkn eða vímuefnanotkun — hvort sem vandinn er þinn eigin eða einhvers nákomins.
Fíkni- og vímuefnavandi hefur sjaldnast áhrif á einn einstakling eingöngu heldur getur haft mikil áhrif á pör, börn og fjölskylduna í heild.
Ég býð einstaklingum, pörum og fjölskyldum ráðgjöf þegar fíkn eða vímuefnanotkun hefur áhrif á líðan, samskipti og tengsl.
Áherslan er meðal annars á að skapa aukinn skilning á því hvernig vandinn hefur áhrif á einstaklinginn og tengslin í kringum hann, skoða samskipta- og tengslamynstur og styðja við breytingar sem geta bætt líðan og samskipti.
Fyrsta skrefið er samtal
Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.
Erfið reynsla og áföll, meðvirkni, tengslavandi, mörk og sambandsslit.
Þegar samskipti, álag eða breytingar hafa áhrif á tengsl innan fjölskyldunnar.