Elísabet Ósk Vigfúsdóttir · Fjölskyldufræðingur og pararáðgjafi
Sköpum tengsl sem endast
Traust, hlýja og dýpri samskipti verða ekki til af sjálfu sér. Þau verða til þegar við fáum tækifæri til að skilja betur hvað gerist innra með okkur og á milli okkar – og finnum nýjar leiðir til að mætast.
Ég vinn með einstaklingum, pörum og fjölskyldum sem vilja bæta samskipti, skilja betur eigin viðbrögð og tengslamynstur og skapa öruggari og heilbrigðari tengsl.
Hvernig ég get stutt þig
Erfið reynsla og áföll, meðvirkni, tengslavandi, mörk og sambandsslit.
Samskiptaerfiðleikar, ágreiningur og endurtekin samskiptamynstur, ásamt áskorunum tengdum trausti, nánd og kynlífi.
Samskiptaerfiðleikar, álag og breytingar sem hafa áhrif á tengsl og líðan innan fjölskyldunnar.
Stuðningur vegna skilnaðar, foreldrasamstarfs, forsjár- og umgengnismála og mikils ágreinings.
Stuðningur við foreldrahlutverkið, barneignarferlið, tengslamyndun við barn og samskipti innan stjúpfjölskyldna.
Ráðgjöf fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur sem verða fyrir áhrifum af fíkn eða vímuefnanotkun.
Parameðferð – skilningur og verkfæri til breytinga
Í parasamböndum getum við fest okkur í samskiptamynstrum sem verða smám saman erfiðari að komast út úr. Annar aðilinn leitar kannski meira eftir svörum, nánd eða breytingum á meðan hinn dregur sig til baka, ver sig eða lokar á samtalið.
Í parameðferð vinn ég bæði með það sem liggur undir slíkum viðbrögðum og með hagnýtar leiðir til að bæta samskiptin.
Ég nýti markviss verkfæri og æfingar sem geta hjálpað pörum að hlusta betur hvort á annað, takast á við ágreining á uppbyggilegri hátt og auka gagnkvæman skilning.
Hvað er EFT?
Tilfinningamiðuð parameðferð (EFT/EFCT) er gagnreynd meðferðarnálgun sem byggir meðal annars á tengslakenningum og beinist að tilfinningum, tengslum og samskiptamynstrum í parasambandinu.
Í EFT er unnið að því að hjálpa pörum að þekkja neikvæð samskiptamynstur, skilja betur hvað liggur að baki viðbrögðum hvors annars og finna nýjar leiðir til að mætast.
Foreldrar og fjölskyldulíf
Að verða foreldri og takast á við breytingar í fjölskyldulífi getur falið í sér bæði gleði og margvíslegar áskoranir.
Ég býð foreldrum og verðandi foreldrum ráðgjöf þegar vanlíðan, álag eða aðrar áskoranir hafa áhrif á foreldrahlutverkið, barneignarferlið eða tengslamyndun við barn.
Bakgrunnur minn sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur nýtist í þessari vinnu og gefur mér innsýn í þær miklu breytingar sem geta fylgt meðgöngu, fæðingu og fyrstu skrefunum inn í foreldrahlutverkið.
Ég mæti fólki af virðingu og án fordóma
Ég er menntuð sem fjölskyldufræðingur og pararáðgjafi ásamt því að vera í grunninn menntuð sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Ég veiti einstaklingum, pörum og fjölskyldum ráðgjöf og meðferð og legg áherslu á að mæta fólki af virðingu, á jafningjagrundvelli og án fordóma.
Í vinnunni minni leitast ég við að skilja ekki aðeins hvað fólk er að glíma við heldur einnig hvað liggur þar undir – og um leið að finna hagnýtar leiðir og verkfæri sem geta skapað breytingar í líðan, samskiptum og tengslum.
Menntun og sérhæfing
Ég hef fjölbreyttan faglegan bakgrunn og hef samhliða grunnmenntun minni sótt reglulega framhaldsmenntun og sérhæfingu á sviði fjölskyldu- og parameðferðar, EFT, áfalla- og meðvirknimeðferðar, sáttamiðlunar og vinnu með fjölskyldum í skilnaðarferli.
2026 ICEEFT-viðurkennt EFT Externship í Emotionally Focused Couple Therapy
2026 Sérhæft EFCT-námskeið og vinnustofur
Með áherslu á áskoranir tengdar nánd og kynlífi í parasamböndum
2025 Par-tjek uddannelsen
Center for Familieudvikling
2023 Alþjóðleg löggilding í PREP paranámskeiðum
Center for Familieudvikling
Sköpum tengsl sem endast
Hvort sem þú ert að leita eftir stuðningi fyrir þig, sambandið þitt eða fjölskylduna getur fyrsta skrefið verið samtal um það sem þú ert að takast á við og hvert þú vilt stefna.
Ráðgjöf og meðferð á íslensku og dönsku. Viðtöl eru sniðin að þörfum hvers og eins, hvort sem um er að ræða einstakling, par eða fjölskyldu.