Hvað er EFT?
Tilfinningamiðuð parameðferð — gagnreynd nálgun sem beinist að tilfinningum, tengslum og samskiptamynstrum í parasambandinu.
Tilfinningamiðuð parameðferð (EFT/EFCT) er gagnreynd meðferðarnálgun sem byggir meðal annars á tengslakenningum og beinist að tilfinningum, tengslum og samskiptamynstrum í parasambandinu.
Pör geta fest sig í neikvæðum samskiptamynstrum þar sem til dæmis gagnrýni, varnarviðbrögð eða fjarlægð fara að viðhalda vandanum. Í EFT er unnið að því að hjálpa parinu að þekkja þessi mynstur, skilja betur hvað liggur að baki viðbrögðum hvors annars og finna nýjar leiðir til að mætast.
Áherslan færist þannig frá því að finna hvor hefur rétt fyrir sér eða hvor þarf að breytast yfir í að skilja mynstrið sem verður til á milli parsins og þær tilfinningar og þarfir sem liggja þar undir.
Markmiðið er að rjúfa erfið samskiptamynstur, auka tilfinningalegt öryggi og styrkja tengsl, traust og nánd í sambandinu.
Af hverju EFT?
EFT er gagnreynd og alþjóðlega viðurkennd meðferðarnálgun með umfangsmikinn rannsóknargrunn. Aðferðin hefur verið rannsökuð í áratugi og rannsóknir benda meðal annars til góðs árangurs við að draga úr vanlíðan í parasamböndum og styrkja tengsl.
EFT hefur einnig verið rannsökuð hjá fjölbreyttum hópum og meðal para þar sem erfið reynsla, áföll og fyrri sár hafa áhrif á sambandið.
Fyrsta skrefið er samtal
Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.
Skilningur og verkfæri til breytinga fyrir pör sem vilja rjúfa erfið mynstur.