Foreldrar, verðandi foreldrar og stjúpfjölskyldur
Stuðningur við foreldrahlutverkið, barneignarferlið, tengslamyndun við barn og samskipti innan stjúpfjölskyldna.
Foreldrahlutverkið og breytingar á fjölskyldugerð geta falið í sér bæði gleði og margvíslegar áskoranir.
Ég býð foreldrum og verðandi foreldrum ráðgjöf og stuðning þegar vanlíðan, álag eða aðrar áskoranir hafa áhrif á foreldrahlutverkið, barneignarferlið eða tengslamyndun við barn.
Bakgrunnur minn sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur nýtist einnig í þessari vinnu og gefur mér innsýn í þær miklu breytingar sem geta fylgt meðgöngu, fæðingu og fyrstu skrefunum inn í foreldrahlutverkið.
Stjúpfjölskyldur
Í stjúpfjölskyldum geta ný hlutverk, ólíkar væntingar og tengsl milli fjölskyldumeðlima kallað á aðlögun og nýjar leiðir í samskiptum. Þar getur ráðgjöf meðal annars hjálpað fjölskyldunni að auka gagnkvæman skilning, skýra hlutverk og finna leiðir sem styðja við tengsl og líðan innan fjölskyldunnar.
Fyrsta skrefið er samtal
Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.
Þegar samskipti, álag eða breytingar hafa áhrif á tengsl innan fjölskyldunnar.
Skilningur og verkfæri til breytinga fyrir pör sem vilja rjúfa erfið mynstur.