Um mig
Fjölskyldufræðingur og pararáðgjafi — og í grunninn ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Ég er menntuð sem fjölskyldufræðingur og pararáðgjafi ásamt því að vera í grunninn menntuð sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Ég veiti einstaklingum, pörum og fjölskyldum ráðgjöf og meðferð með áherslu á samskipti, tilfinningar, tengsl og þau mynstur sem geta haft áhrif á líðan og náin sambönd.
Í gegnum störf mín hef ég lagt áherslu á að dýpka þekkingu mína á því hvernig fyrri reynsla, áföll og tengslamynstur geta haft áhrif á líðan okkar og samskipti við aðra. Ég hef lokið námi í hugrænni atferlismeðferð og MÁPM meðvirkni- og áfallameðferð, auk framhaldsnáms og sérhæfingar á sviði fjölskyldu- og parameðferðar, sáttamiðlunar og meðferðarvinnu með foreldrum og börnum í skilnaðarferli.
Undanfarin ár hef ég sérhæft mig enn frekar í parameðferð. Ég hef meðal annars lokið Par-tjek námi hjá Center for Familieudvikling, öðlast alþjóðlega löggildingu til námskeiðahalds fyrir pör í PREP og lokið ICEEFT-viðurkenndu Externship í tilfinningamiðaðri parameðferð (EFT). Ég hef jafnframt sótt sérhæft EFCT-námskeið og vinnustofur með áherslu á áskoranir tengdar nánd og kynlífi í parasamböndum.
Í meðferðarvinnunni legg ég mikinn metnað í að mæta fólki af virðingu, á jafningjagrundvelli og án fordóma. Mér finnst mikilvægt að horfa ekki aðeins á hvað fólk er að glíma við heldur einnig hvað liggur þar undir – og um leið að finna hagnýtar leiðir og verkfæri sem geta skapað breytingar í samskiptum, líðan og tengslum.
Meðferðarnálgun
Ég vinn meðal annars út frá tilfinningamiðaðri meðferðarnálgun (EFT), tengslakenningum, meðvirkni- og áfallameðferð og lausnamiðaðri nálgun.
Í meðferðinni legg ég áherslu á að skapa skilning á þeim tilfinningum, þörfum og samskiptamynstrum sem hafa áhrif á líðan og tengsl, en jafnframt að vinna á hagnýtan hátt með það sem fólk getur gert til að bæta líðan, samskipti og tengsl.
Meðferðin er sniðin að einstaklingnum, parinu eða fjölskyldunni og þeim aðstæðum sem liggja fyrir hverju sinni.
Menntun og sérhæfing
Ég hef fjölbreyttan faglegan bakgrunn og hef samhliða grunnmenntun minni sótt reglulega framhaldsmenntun og sérhæfingu á sviði fjölskyldu- og parameðferðar, EFT, áfalla- og meðvirknimeðferðar, sáttamiðlunar og vinnu með fjölskyldum í skilnaðarferli.
2026 – ICEEFT-viðurkennt EFT Externship í Emotionally Focused Couple Therapy
2026 – Sérhæft EFCT-námskeið og vinnustofur
2025 – Par-tjek uddannelsen, Center for Familieudvikling
2024 – Sérhæfing í meðferðarvinnu tengdri skilnaði og miklum ágreiningi foreldra
2023 – Sérhæfing í verkfærum og aðferðum í parameðferð
2023 – Nám í sáttamiðlun, Sáttamiðlaraskólinn
2023 – Alþjóðleg löggilding í PREP paranámskeiðum
2022 – MÁPM meðvirkni- og áfallameðferð
2020–2022 – Fjölskyldumeðferðarfræði, Endurmenntun Háskóla Íslands
Ég hef jafnframt lokið Diploma-námi í hugrænni atferlismeðferð og er menntuð ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Ég er með starfsleyfi frá Embætti landlæknis.
Viðtöl
Ég býð upp á ráðgjöf og meðferð á íslensku og dönsku.
Viðtöl eru sniðin að þörfum hvers og eins, hvort sem um er að ræða einstakling, par eða fjölskyldu.
Fyrsta skrefið er samtal
Bókaðu tíma og við förum yfir hvar þú stendur og hvert þú vilt stefna.